Stjórnarfundur 9 janúar 2012.
Hægt er að lesa fundargerðina með því að opna pdf file hér að neðan
stjrnarfundur_9._janar.pdf | |
File Size: | 161 kb |
File Type: |
Stjórnarfundur 8. nóvember 2011
Mættar klukkan 20.00 eru Dagbjört, Lovísa og Sara.
Farið var yfir dagskrá vinnuprófa fyrir árið 2012 sem gekk greiðlega fyrir sig.
Stjórnin ætlar að sækja um reglubreytingu þar sem deildarpróf verði frá og með næsta ári lokuð. Okkur finnst það ekki rétt þróun að fólk sé að sniðganga opnu prófin til að bíða eftir einhverju ákveðnu prófi sem stendur svo ekki undir sér og þarf sérstaklega að opna í þeim tilgangi. Við teljum auk þess að hópurinn sem er að keppa og hefur gaman af því verði samheldnari ef fleiri taka þátt í opnu prófunum. Lokuðu prófin verða eins og alltaf, ekki tekin gild til stigahæsta hunds hvers árs.
Seinasta hlýðniæfing Vinnuhundadeildar á árinu verður 17. nóvember. Jólagleði Vinnuhundadeildar verður vonandi sett fimmtudaginn 24. nóvember eða þar um kring, en sótt verður um Síðumúla undir gleðina.
Stjórnin ætlar að breyta reglunum til stigahæsta hunds ársins. Þegar farið er yfir stigahæstu hundanna geti sami hundurinn ekki unnið til tveggja verðlauna í sama flokki. Hæsta skor viðkomandi hunds mun gilda til verðlauna en ef ein manneskja keppir með tvo hunda geti hún vitaskuld unnið til tveggja verðlauna með sitthvorn hundinn.
Þurfum að fá úrslit seinasta vinnuprófs sem var sporapróf Schnauzerdeildar. Það var einhver misskilningur með titlana og það þarf að fá staðfestingu að leiðréttingin sem var send hafi verið samþykkt. Sendur verður tölvupóstur varðandi þessi efni.
Stjórnin er farin að vera spennt fyrir því að senda af stað hóp sporadómaranema til að fylgja Alberti eftir í sporaprófum. En fyrst þyrfti að ná fólkinu á lista sem hefur áhuga og að hópurinn að byrja að æfa sig saman í spori. Það kom upp tillaga að hægt væri kannski að samnýta einhvern dómara sem væri að koma útaf sýningu í febrúar eða júní.
Búið er að senda til Dagbjartar þýddum reglum af hlýðni II og III ásamt fleiru sem þarfnast þó smá yfirferðar.
Búið er að senda til Vinnuhundadeilar þýddum almennum reglum í spori og er hafin yfirferð á þeim og smá staðfæring.
Það komu upp vangaveltur um peysurnar VHD sem liggja inni hjá Merkiverk í bið. Seinasta logo sem við létum þá hafa er ekki í nægilega góðri upplausn og þurfum við enn og aftur að finna leið til að vinna á því. Heiðrún þekkir mögulega manneskju sem getur aðstoðað okkur. En kom svo í ljós að það gékk því miður ekki upp. Það þarf kunnáttu á forrit á líka og illustrator til að teikna lógó upp á nýtt.
Það verður athugað hvort að hægt verði að nota bílastæðahús Hjartaverndar fyrir hlýðniæfingar á nýju ári þar sem það hefur gengið misvel að notast við Holtagarða vegna stærðar bílastæðahússins.
Stjórnin er mjög spennt fyrir því að standa fyrir einni lausagöngu í Straumi þar sem fólk getur labbað í rólegheitum og spjallað meðan hundarnir leika sér.
Fundi slitið.
Sameiginlegur stjórnar fundur HRFÍ og VHD
12. október 2011
Mættir á fundinn eru úr stjórn HRFÍ, Jóna, Guðríður, Valgerður, Súsanna, Björn og Anna María.
Mættir á fund fyrir hönd VHD eru Dagbjört, Heiðrún, Lovísa og Sara.
Fundur hefst kl 18:00
Breytingar á reglum fyrir bronsprófið er tekið fyrir fyrst. Valgerður talaði um að henni þætti þetta bara
vera einhver áherslu munur á þessum tveimur prófum en að í nýju reglunum sé einkunnin rosalega
háð persónulegu mati dómar og fannst núverandi reglur betri. Hún talaði um að það væri meiri þörf á
hlýðni II reglum hvort það væri ekki hægt að skoða þær. Þegar umræður um hvaðan það próf ætti að
koma þá var stungið upp á að taka það frá Noregi og verður það skoðað nánar.
Bronsprófið verður því ekki breytt í bili (verður sem sagt ekki léttara) en VHD er búin að fá leyfi til að
búa til einhvers konar undirbúningspróf til að hvetja fólk áfram í að keppa.
VHD var spurð hvort að það væri komin einhver hópur fólks sem er tilbúinn að læra sporadómarann og
er það í vinnslu. Þeir sem hafa áhuga á að læra sporadómarann, hjálpa til við sporapróf og dæma seinna
meir mega gjarnan senda umsóknir á [email protected] og er æskilegt að umsækjendur
skrifi nokkrar línur um sjálfa sig. Ef nægur fjöldi næst í að læra sporadómarann er mjög líklegt að hægt
verði að fá erlendann dómara til að kenna á Íslandi.
Undanfarið hefur VHD verið að biðja um borða til að gefa í enda hlýðni prófa og var rætt hvort að
reglurnar ættu við að borðarnir séu einungis notaðir þegar um alþjóðleg próf er að ræða. Samþykkt
var að taka út viðurkenningarskjölin alveg (blaðið með einkununum verður samt gefið áfram) og hafa
borða í staðinn. Stjórn HRFÍ er að fara til Svíþjóðar og báðu VHD að hafa samband við Brukshund
klúbbinn í Svíþjóð og biðja þá um að finna þetta til fyrir HRFÍ.
Stjórn HRFÍ spurði út í dómarasamræmingarfundinn og var sagt örstutt frá honum.
Varðandi sporareglurnar þá er stórt verkefni framundan.
Það þarf að finna góðar og haldbærar reglur, þýða þær og staðfæra. Almennu reglurnar frá Noregi eru komnar á smá skrið og þegar aðspurð hvað okkur finnst um þessar reglur hafði stjórn VHD bara gott um þær að segja. Þær eru mjög ítarlegar og góðar.
Ylfa Ólafsdóttir er nú þegar að vinna við þýðingu á þeim reglum.
Kennitalan var rétt svo tekin upp örsnöggt og nefndi stjórn HRFÍ að við þyrftum að búa til reglur í
tengslum við kennitöluna en að öðru leiti mættum við bara byrja ferlið að sækja um hana.
Það voru rædd prófgjöld enn eina ferðina. Í þetta skipti var rætt um afsláttinn sem var samþykktur fyrir
schnauzer prófið. HRFí nefndi að við mættum setja þetta upp eins og veiðiprófin. Vinnupróf fyrir einn
dag kostar þá 4500, vinnupróf fyrir tvo daga kostar 7000, vinnupróf fyrir þrjá daga kostar 9500 með
því skilyrði að prófin séu hvert á eftir öðru (dag eftir dag). Það verður að vera sami hundurinn sem
þreyjir öll prófin, þetta er sem sagt ekki ,,systkina” afsláttur.
Vinnuhundadeild fékk samþykktar reglur fyrir bæði spor og hlýðnititla fyrir bæði hreinræktaða (ættbókarfærða hunda hjá HRFÍ) og blendinga.
Reglur fyrir titlana verða birtar og kynntar von bráðar.
Stjórn VHD hefur fengið leyfi til að senda inn nýja dagskrá fyrir árið 2012 með hliðsjón af þessum nýju reglum um gjaldskránna.
VHD verður með smá sýningu á næstu sýningu.
Erindi barst til HRFÍ varðandi að einn hundur var skráður tvisvar sinnum í sama flokk í sama prófi sama dag.
Erindið var lagt undir Vinnuhundadeildar til álits.
Voru allir í báðum stjórnum sammála um að það væri ekki rétt að leyfa þessa framkvæmd og var það rætt fram og til baka og samþykkt að veita keppanda ekki leyfi til þátttöku tvisvar sinnum með sama hund í sama próf.
Fór Vinnuhundadeild fram á að gerð yrði reglubreyting og yrði bætt við klausu í almennar og þátttökureglur um vinnupróf þar sem þetta kæmi skýrt fram.
Stjórnarmeðlimir VHD sem voru mættir á svæðið spjölluðu eftir fundinn og voru sammála um að það
hefði verið góður og jákvæður andi yfir fundinum.
Fundi slitið 19:30.
Stjórnar fundur 3. ágúst 2011
Mættir á fund eru Dagbjört, Guðjón, Heiðrún, Lovísa og Sara.
Rætt var um hlýðniæfingar VHD. Það þarf að huga að einhverjum breytingum varðandi æfingarnar.
Ákveðið hefur verið að taka upp væg gjöld á hlýðniæfingum sem fjáröflun. Útbúin verða afsláttarkort
og sett upp mætingarbók þar sem fólk getur keppst að því að hafa bestu mætinguna. Veitt verða
verðlaun árlega fyrir þann sem nær bestu mætingunni.
Peysurnar voru teknar upp. Við höfum sótt um styrk á nokkra staði í von um að fá auglýsingu á
peysurnar svo að VHD fái meira út úr fjáröfluninni og samt halda kostnaði í lágmarki. Komist var að
þeirri niðurstöðu að best væri að VHD myndi bara borga merkinguna en reyna að halda verðinu samt í
lágmarki.
Umræður þar sem við vorum ekki að skilja hvað við vorum að fá lítið af svörum frá stjórn HRFÍ, en
það var síðan útskýrt nánar fyrir okkur.
Viljum endilega hafa opið kvöld þar sem einnig munu erindin okkar verða kynnt fáist þau samþykkt.
Rætt um sporareglurnar, það þarf að redda íslenskum reglum og það sem allra fyrst. Reyndum að skoða
sænsku reglurnar sem Albert segist miða við og það gekk eitthvað illa. Stjórninni finnst að ekki eigi að
halda spor II fyrr en góðar haldbærar (íslenskar) reglur eru komnar.
Rætt var um schäfer sporaprófið og allir sammála um að framkvæmdin hefði mátt vera töluvert betri.
Rætt var lítillega um prófa fyrirkomulagið eins og það er núna og um úrbætur (opin og lokuð próf, og
fleira í þeim dúr). Það má óska eftir dómara, en það er ekki hægt að lofa neinu í þeim efnum.
Það þarf að gera grein fyrir Sám.
Það þarf eitthvað að fara yfir vefsíðuna og betrumbæta. Guðjón bauðst til þess að aðstoða eitthvað þar.

Stjórnarfundur 13.apríl 2011
Fundur settur klukkan 19.00. Mættir á fund eru Dagbjört, Guðjón, Heiðrún og Sara.
Dagbjört fór í dag til þess að nálgast próf gögn sem eiga að vera í geymslu í HRFÍ
en kemur í ljós að skrifstofan er ekki með öll þau gögn sem þau eiga að hafa og gæti
verið að einhver gögn hafi gleymst hjá fyrrum stjórnarmeðlimum eða glatast. Ætlar
stjórnin að fara yfir það á næstu dögum og vikum hvað það er sem vantar upp á og
hvort eitthvað af því sé ekki bara í vörslu skjalavarðar.
Farið var lauslega yfir erindi sem sent var Hrfí.
Rætt var um aðstöðu hlýðniæfinga og var rætt um það að aðstaðan er of lítil þar sem við höfum verið.
Heiðrún ætlar að kanna að fá leyfi í Holtagörðum.
Dagbjört ætlar að setja kynningu á hverjum og einum stjónarmeðlim á vefsíðuna sína og ætla allir að skila inn kynningu með mynd.
Allir sem sátu fundinn kváðust hafa áhuga á prófstjóra og ritaranámskeiði og vonum við að það verði haldið.
Samræmingarfundur fyrir dómara verður haldinn 26. apríl næstkomandi klukkan
20.30.
Stjórn VHD sótti um að fá að sitja á næsta fundi stjórnar HRFÍ sem fer fram 27. apríl.
Það sem stjórnin hefði áhuga á að taka fyrir væri samþykki fyrir því að breyta bronsprófi samkvæmt nýjustu reglum NKK (Norsk Kennel Klub) en þær reglur myndu að
öllum líkindum ekki taka gildi fyrr en á næsta ári.
Rætt var um fulltrúaráðsfundinn 4.maí n.k og hefur það verið ákveðið að Dagbjört og Sara
mæta á fundinn.
Settur verður fundur til að fara yfir sporareglur í spori III og sjá til þess að þær séu
eins og þær eiga að vera.
Sara mun athuga með verðlaun fyrir spor I og II sem verður haldið 14./15. maí.
Það á enn eftir að leysa nokkra hnúta verðandi það að halda æfingar brons próf og
ætlar Guðjón að skoða það.
Fundi slitið 20:30

Stjórnarfundur 14. mars 2011
Fundur settur klukkan 20.00.
Mættar eru Dagbjört, Heiðrún, Lovísa og Sara.
Varðandi bréf og fyrirspurnir sem hafa verið sendar til stjórnar HRFÍ höfum við ekki
fengið viðbrögð. Við höfum fengið þær upplýsingar að fundinum þeirra hafi eitthvað
verið seinkað sem er ástæðan fyrir því að svar hefur ekki verið gefið.
Varðandi bás VHD í Garðheimum, það þurfti að klára að manna básinn. Settum niður
fólkið og lítur út fyrir að það hafi náðst að full manna básinn. Farið var yfir það fólk
sem hefur boðið sig fram í að sýna smá hlýðni eða trix og ef allt gengur eftir erum við
með flottan hóp af fólki til að sýna.
Það hefur ekki farið mikið fyrir skráningum í VHD og höfum við áhuga á að breyta því.
Niðurstaðan varð sú að við verðum með skráningarblöð á básnum næstu helgi fyrir
Á básnum næstu helgi þá er ætlunin að auglýsa sýninguna sem við ætlum að vera
með apríl og keppnina sem verður haldin í maí. Freyja Kristinsdóttir hundaþjálfari
hefur samþykkt að dæma trix keppnina sem verður haldin í maí.
Hugmynd að æfinga Brons prófi (jafnvel nokkrum) var velt fram og vorum við allar
sammála um að það gæti verið góð hugmynd. Það er að segja að halda æfinga
Brons próf inn á milli fyrir þá sem eru enn að æfa sig. Monika hefur samþykkt að vera
dómari í þannig prófum svo lengi sem hún fái góðan fyrirvara á þeim. Gjaldið á þessi
próf yrði 1500 krónur og færi helmingur peningsins til dómarans og rest í verðlaun. Það verður svo að
sjá til hvernig viðrar hvort þurfi að leigja út húsnæði eða hvort hægt er að framkvæma
utan dyra því þá gæti gjöld hækkað örlítið.
Stjórnin er mjög spennt fyrir því að fá Rallý inn í HRFÍ en sú umræða er á
byrjunarstigi. Það þarf að þýða reglurnar og fleira í þeim dúr. Vonum að hægt verði
að skoða það betur sem fyrst.
Það vantar hopp/hindrun sem hægt er að fara með á hlýðniæfingar VHD og ætlar stjórnin
að kanna það hvort hægt er að fela það í umsjá stjórnar VHD svo þeir sem hafa nú
þegar náð Bronsinu geti farið að æfa fyrir Hlýðni I.
Vinnuhundadeildar peysur verða vonandi að veruleika fljótlega. Sara ætlar að athuga
með sponsora fyrir peysurnar en við ætlum að athuga hvort Merkiverk sé ekki til í að
gera einhvern góðan samning við okkur á verði á peysunum.

Stjórnarfundur 6.mars 2011
Fundur settur klukkan 20.00.
Mættir eru Dagbjört, Sara Ósk, Lovísa og Heiðrún.
Mál á dagsskrá:
Verkaskipting stjórnar.
Það hefur verið skipt í hlutverk og embætti eru sem hér segir:
Formaður: Dagbjört Örvarsdóttir
Gjaldkeri: Lovísa Bragadóttir
Ritari: Sara Ósk Halldórsdóttir
Póstlisti: Heiðrún Klara Johansen
Skjalavörður: Guðjón Árman Halldórsson
Bréf um lækkun prófgjalda hefur verið samið. Lásum bréfið yfir, gerðum örlitlar breytingar og
verður það sent sem fyrst á stjórn HRFÍ.
Logo Vinnuhundadeildarinnar sem var búið til af Dagbjörtu Örvarsdóttur og Þórdísi
Björnsdóttur Thoroddsen hefur verið samþykkt.
Allir mættir stjórnarmeðlimir voru sammála
um að logoið yrði notað.
Hlýðni I próf 16. apríl fyrir Schäferdeildina var tekið fyrir og var samþykkt að sækja um það
fyrir deildina eins fljótt og hægt er. Sara Ósk tekur að sér þá beiðni.
Brons prófið sem var skráð 28. mars fyrir mistök en verður ekki haldið sökum þess að það
hittir á mánudag var skoðað nánar. Við vorum sammála um að fólk hefur verið að sýna þessi
Brons prófi áhuga og ætlum því að sækja um að það verði Brons próf 27. mars og kemur því
á sunnudegi. Sara Ósk tekur að sér þá beiðni.
Hunda-Hanna ætlar að halda námskeið í tengslum við merkjamál hunda (tungumál
hundsins). Mörkin verða líklega sett við 12 manneskjur sem geta tekið þátt í námskeiðinu
og verður það haldið 10. apríl. Stjórnin var með augastað á Sólheimakoti og hefur það
verið samþykkt að við fáum afnot af því húsnæði. Fyrir þetta námskeið þarf fólk að vera
félagsmenn í HRFÍ.
Það vantar starfsfólk í sum vinnupróf á árinu. Fyrir 12. mars verður Lovísa ritari, Haukur,
prófstjóri og Albert dómari. Ekki búið að festa niður starfsfólk fyrir Brons prófið 27. mars, ef
beiðnin fyrir það próf verður svo samþykkt.
Samræmd prófstjórn. Við höfum eitthvað heyrt af því að fólk vilji sjá meira samræmi milli
dómara og prófstjóra og er á döfinni fundur sem verður haldinn með prófstjórum og dómurum
í þeim tilgangi að samræma. Verður betur auglýst síðar.
Hlýðni og trix sýning þann 2. apríl á vegum Vinnuhundadeildarinnar í gæludýrabúðinni
Gæludyr.is á Korputorgi og er ætlunin að reyna að auglýsa starf Vhd sem best. Þessi
viðburður verður auglýstur í Fréttablaðinu á sama degi og þetta er haldið.
Ljósmyndasamkeppni Vinnuhundadeildarinnar er byrjuð! Þemað er hundur í vinnu, myndin
á að vera 300ppi í jpeg formati og má ekki vera vatnsmerkt, samanþjöppuð eða minnkuð.
Skilafrestur er 7. apríl. Merkiverk gefur vegleg verðlaun fyrir 1. sæti sem er vinningsmyndin
á striga og 3 efstu myndirnar verða notaðar í plaköt.
Dómari verður ljósmyndarinn Rakel Jónsdóttir (bjort.is).
Myndirnar sem berast inn verða svo notaðar til að búa til dagatal sem
verður síðar notað í fjáröflun fyrir deildina. Nánari upplýsingar eru síðu Vinnuhundadeildar
undir meira eða ,,more“.
TRIX keppni 24. apríl. Það þarf að skrá sig í keppnina í gegnum tölvupóst og þátttökugjald er
borgað á staðnum sem er 1500 kr. Tónlist verður undir til að ná upp góðri stemningu.
Stórhundadagar í Garðheimum. Á seinasta ári fékk Vinnuhundadeildin bás og vonumst til
þess að geta fengið það aftur ásamt því að sýna smá hlýðni og trix. Heiðrún Klara ætlar að
athuga málið fyrir okkur.
Spor III reglurnar. Áætlað er að halda fund með þeim sem þekkja Spor III reglurnar mjög vel.
Lesa yfir og lagfæra ef nauðsyn þykir. Dagbjört sér um fundarboðið.
Hlýðniæfingar verða áfram með sama sniði, tvisvar í mánuði.
Stjórnin samþykkti að skipta
með sér fimmtudögum til að létta á þeim stjórnarmeðlim sem hefur þurft að sjá um þetta ein í
þónokkun tíma. Það hefur verið ákveðið að bráðlega verði farið að taka mjög vægt gjald fyrir
hlýðniæfingarnar og verður sett upp mjög þægilegt kerfi sem verður kynnt nánar síðar.
Prófstjóranámskeið verður haldið fljótlega og vonast stjórnin til þess að fólk taki vel í það
að fara á námskeiðið. Sjáum fram á að Heiðrún, Sara og Dagbjört í stjórninni munu fara á
þetta námskeið en þar sem stjórnin tekur stundum þátt í vinnuprófum væri gott að fá fleiri
manneskjur til skiptana.
Fundi slitið 22:30

Ársfundur 5.mars 2011
Ársfundur Vinnuhundardeildar fór fram þann 5.mars
Mál á dagsskrá:
Árskýrsla var lesin og athugasemdum bætt við skýrsluna.
Rætt var um reglur í hlýðni og spori. Reglurnar eru til segir Albert og þarf að senda reglur á Dagbjörtu svo hægt sé að færa á vefsíðu okkar.
Rætt var verð á vinnuprófum..
Það var samhljómur um að fólki finnst gjald í vinnupróf of dýr.
Núskipandi stjórn ætlar að leggja málið fyrir stjórn Hrfí.
Einnig var gerð athugasemd við ráðuneyti vinnuprófa.
Kosning fór fram, þrjú framboð bárust deildinni og sjáfkjörnar voru þær Heiðrún Klara Johansen, Sara Ósk Halldórsdóttir og Lovísa Bragadóttir sem komu í stað Hauks Birgissonar, Albert Steingrímssonar, og Steinars Lúðvíkssonar.
Að lokum voru stigahæstu hundar ársins verðlaunaðir og við þökkum Platinum og Gæludýr.is hjartanlega vel fyrir hjálpina og gefa okkur þessi glæsilegu verðlaun !!
Fundi slitið 15:00

Stjórnarfundur 29.janúar 2011
Mættir eru: Steinar, Albert og Dagbjört.
Mál á dagsskrá:
Bréf frá schnauzerdeild
þar sem barst beiðni um lokuð vinnupróf fyrir Schnauzerdeildina.
Stjórnin samþykkti að halda próf fyrir Schnauzerdeild Hrfí og munu þau verða haldin 15 og 16 október næstkomandi.
Steinar mun sjá um að láta deildina vita.
Stigahæðstu hundar ársins 2010.
Ákveðið var að deildin muni heiðra stigahæðstu hunda ársins 2010 á næsta aðalfundi.
Búið verður til regluverk fyrir þetta titla sem munu verða fyrir stigahæðsta hund í spor I, spor II, Bronz hlýðni og hlýðni I en það eru einu prófin sem haldin hafa verið hingað til innan Vhd.
Mun þetta verða í fyrsta sinn sem stigahæðstu vinnuhundar verða verðlaunaðir.
Dagbjört mun sjá um að útvega styrktaraðila og útbúa viðurkenningarskjöl.
Mun verða auglýst í aðalfundarboði.
Fyrirspurn Svæðafélags norðurlands
um breytta dagssetningu Bronz hlýðni prófs.
Beiðnin var samþykkt og mun prófinu verða flýtt um viku og verða haldið þann 9.apríl næstkomandi.
Reglur vinnuprófa
bárust í tal og reglur eru til fyrir hlýðnipróf sem þarf að uppfæra, þýða og staðfæra.
Spor III próf
Sú spurning barst í tal hvort reglur væru til fyrir spor III próf en svo er ekki þar sem reglurnar hafa ekki fyrr verið þýddar og aldrei hefur verið haldið spor III próf fyrr á Íslandi.
Dagbjört ætlar að senda bréf á stjórn hrfí til að fá þær þýddar og staðfærðar.
Brons próf opið
á höfuðbrogarsvæðinu.
Bætt var við einu vinnuprófi og Dagbjört ætlar að senda á stjórn hrfí dagssetningu til samþykktar.
Prófið mun trúlega verða haldið helgina 28/29 maí næstkomandi.
Kynningar
Dagbjört ætlar að athuga hvort fólk sé viljugt til að taka þátt í kynningu á bás hrfí sýningar.
Dagbjört mun senda bréf á deildir félagsins til að bjóða fólki að fá fulltrúa frá Vhd til að halda kynningar um spor og hlýðni.
Listi yfir dómara
Dagbjört mun birta lista yfir dómara vinnuprófa á síðu Vinnuhundadeildar.
Dómurum verður frjálst að setja inn kynningu um sig ef áhugi er fyrir hendi.
Dagbjört hefur lagt drög að ársskýrslu deildarinnar og verður hún send á stjórn vhd.
Dagbjört tekur að sér að svara fyrirspurn frá Pétri um heiðrun stigahæðstu hunda ársins í vinnuprófum.
Rætt var um keppnisbækur og ætlar Dagbjört að taka að sér að reyna að útvega sýnishorn af umræddri keppnisbók.
Senda þarf út tilkynning um aðalfund á stjórn Hrfí og til almennings (póstlisti og vefsíða) sem og mun það birtast á síðu Hrfí.
Kosið verður í 3 lausar stöður innan stjórnarinnar og óskað verður eftir framboðum í stjórnarsetu.
Logo er enn ekki komið í vinnslu, var ekki rætt nánar.
Fundi slitið 18:00