Árskýrsla_2014-2015.pdf | |
File Size: | 7 kb |
File Type: |
Ársfundur Vinnuhundadeildar 10. febrúar 2013
Ársfundur Vinnuhundadeildar HRFI fór fram í Síðumúla 15 (húsnæði HRFÍ) þann 10. febrúar 2012 kl. 13:00. Mættir úr stjórn VHD: Heiðrún Klara Johansen og Ylfa Ólafsdóttir.
Mál á dagsskrá:
Ársskýrsla 2012 var lesin upp og farið var yfir helstu uppgjör ársins 2012.
Ársreikningur var lesinn upp sem var ekki langur og mun birtast á vefnum von bráðar fullunninn.
Stigahæstu vinnuhundar ársins 2013 voru heiðraðir og fóru eigendur þeirra út hlaðnir verðlaunum frá eftirtöldum fyrirtækjum:
Verðlaunin voru ekki af verri endanum og við þökkum innilega vel fyrir okkur. Þetta er ómetanleg hvatning fyrir keppendur í vinnuprófum.
Eftir afhendingu verðlauna var farið í stjórnarkjör.
5 aðilar sem stóðu til boða voru sjálfkjörnir inn. Við þökkum fráfarandi stjórn fyrir unnin störf á árinu 2012.
Stjórn skipti með sér verkum þannig:
Formaður: Erla Heidrun Benediktsdottir
Varaformaður: Sigrún Guðmundsdóttir
Ritari: Dagbjört Örvars
Gjaldkeri: Sólrún Dröfn CamaroGrl Helgadóttir
Skjalavörður: Harpa Þorbjörnsdóttir.
Mæting var góð og var gott andrúmsloft á fundinum.
Ný stjórn þakkar fyrir sig.
Fundi slitið 15:00.

- Platinum.is
- Dýrheimar
- Dekurdýr
- Hundahreysti
- Dýrabær

Ársfundur Vinnuhundadeildar 2012
Mættir á staðinn kl. 15.30 eru stjórnarmeðlimirnir Dagbjört, Heiðrún og Sara ásamt Helgu, Kristínu og Rolando.
Af stjórnarmeðlimum þá er tímabil Dagbjartar og Guðjóns að renna sitt skeið. Það var ein manneskja búin að senda framboð sem mætti ekki.
Ársskýrsla lesin og farið er yfir skýrslu Lovísu um bankabókina sem stofnuð var fyrir Vinnuhundadeild.
Þeir sem voru mættir á staðinn voru ekki reiðubúnir að fara í stjórn deildarinnar.
Rolando kom alla leið af Vestfjörðum þar sem hann var að leita til Vinnuhundadeildar leiða til að virkja Vestfirði betur. Hann hefði mikinn áhuga á að sjá staðið fyrir einhverjum vinnuprófum, æfingum og fleiru slíku á Vestfjörðum. Það var rætt við hann að um leið og það hafa fengist tvær manneskjur til að hjálpa honum að halda utan um vinnu eins og hlýðni á Vestfjörðum sé stjórn Vinnuhundadeildar tilbúin að gera það sem hún mögulega getur til að aðstoða Vestfirði í þessu markmiði. Umræðan leiddist að stofnun Svæðafélags Vestfjarða, en það þarf að sækja um slíkt þegar það hefur fengist mannskapur til að sinna svoleiðis deild. Þegar sá tími kemur að sú deild yrði að veruleika væri hún líklega hugsuð í sama sniði og Svæðafélag Norðurlands.
Fólki var boðið að taka orðið eða ræða einhver sérstök málefni en enginn var með neitt sérstakt erindi til stjórnar Vinnuhundadeildar.
Fundi slitið.