Tvöfallt Hlýðnipróf 24.06
Fjórða hlýðnipróf ársins sem halda átti í gær 23. júní var fært til um einn dag og haldið í dag fyrir hádegi á Snæfellsnesi. Einungis fimm hundar voru skráðir í prófið 3 hundar í hlýðni I – 1 hundur í hlýðni II og 1 hundur í hlýðni III.
Einkunnir í Hlýðni I:
Með 165.5 stig var Forynju Aska og Hildur Pálsdóttir = 1. einkunn og 1. sæti
Með 164 stig var Sunnusteins Hryðja (Stella) og Theresa Olsen = 1. einkunn og 2. sæti
Með 110 stig var Hugarafls Hróður (Hrói) og Elín Lára Sigurðar = 3. einkunn
Einkunn í Hlýðni II:
Með 136 stig var Hugarafls Gjóska og Elín Lára Sigurðardóttir = 3. einkunn
Einkunn í Hlýðni III:
Með 200,5 stig var Vonzius Asynja og Hildur Pálsdóttir = 3. einkunn
Eftir hádegi var nýtt próf samkvæmt fyrirhugaðri dagskrá. Þetta var 5. próf ársins en fjórir hundar voru skráðir í það próf:
Einkunnir í Hlýðni I:
Með 178,5 stig var Sunnusteins Hryðja og Theresa Olsen = 1. einkunn og 1. sæti
Með 158,5 stig var Hugarafls Hróður og Elín Lára Sigurðardóttir = 2. einkunn
Einkunn í Hlýðni II:
Með 148 stig var Hugarafls Gjóska og Elín Lára Sigurðardóttir = 2. einkunn
Aðstæður hefðu mátt vera betri og það gekk erfiðlega að finna gott prófsvæði þar sem allsstaðar var komið kafgras og að auki mjög blautt. En allt gekk vel að lokum og prófið gekk vel fyrir sig í alla staði.
Fyrir hönd Vinnuhundadeildar Hundaræktarfélags Íslands þakka ég prófstjóra fyrir vel unnin störf og þátttakendum fyrir góðan dag
Prófstjóri: Brynhildur Bjarnadóttir
Dómari: Þórhildur Bjartmarz

Sporapróf 22.06.2018
Annað sporapróf ársins var haldið á Hólmsheiðinni í gær 22. júní. Einungis þrír hundar voru skráðir til þátttöku, sömu hundar og tóku þátt í sporaprófinu í maí. Dómari var Kristjana Guðrún Bergsteinsdóttir sem var að dæma sitt fyrsta próf en hún hlaut viðurkenningu sem sporaleitardómari í keppnisflokk 1 og 2 hjá Hundaræktarfélagi Íslands í apríl sl. Fyrirhugað var að halda þetta próf á Snæfellsnesi í tengslum við hlýðnipróf en vegna dræmrar þátttöku og þátttakendurnir voru frá Reykjavíkursvæðinu tók stjórn Vinnuhundadeildar ákvörðun um að færa prófið og halda það í heimabyggð.
Ágætis veður og skilyrði voru þegar prófið byrjaði kl. 14 og allar sporaslóðir tilbúnar fyrir þátttakendur í upphafi prófs. Tvær 1000 metra slóðir með fimm 90° beygjum, fimm millihlutum og endahlut. Sporin voru u.þ.b. 60-80 mín gömul. Hundarnir eiga að finna sporaslóðina en stjórnandinn fær að vita hvar hún liggur. Æfingin byrjar í ca 15 metra fjarlægð frá slóðinni.
Hundarnir sem tóku prófið í þessum flokki fengu báðir 1. einkunn spori I í maí sl. og voru því að keppa í fyrsta sinn í framhaldsflokki. Því miður náði hvorugur að klára verkefnið en mæta örugglega vel undirbúinir í næsta sporapróf.
Spor I er hins vegar 35 – 45 mín. gamalt og inniheldur tvær 90°beygjur, tvo millihluti og endahlut. Í því spori kláraði hundurinn verkefnið með góðum árangri og hlaut 1. einkunn og fullt hús stiga eða 100 stig. Það var Ibanez White Shephard Fjalladís, eigandi Þórhildur Bjartmarz.
Kristjana Guðrún, dómari var vel undirbúin og full tilhlökkunar í upphafi prófs. Hún skilaði verkefninu vel og þátttakendur ánægðir með hennar störf. Stjórn Vinnuhundadeildar þakkar henni hér með fyrir að dæma sitt fyrsta próf og óskar henni til hamingju.
Sporapróf Vinnuhundadeildar HRFÍ haldið 22. júní 2018. Þegar flestir íslendingar fylgdust með viðureign Íslands og Nígeríu á VM hittust reynsluboltar í sporaprófi á Hólmsheiðinni
Dómari: Kristjana Guðrún Bergsteinsdóttir
Prófstjóri: Stefanía H. Sigurðardóttir