Fyrsta sporapróf ársins á vegum VInnuhundadeildar HRFÍ var haldið í dag. Alls voru fimm hundar skráðir í próf, allir í Spor I.
Fjórir hundar tóku prófið í glampandi sól og logni á Hólmsheiðinni. Greinileg merki voru á hundunum að þeir eru ekki vanir að vinna við þvílíkar aðstæður og prófið endaði þannig að enginn hundur náði lágmarkseinkunn að þessu sinni.
Prófið hófst með því að nýr prófstjóri var skipaður í fjarveru Kristjönu Bergsteinsdóttur en Ingibjörg Friðriksdóttir tók verkefnið að sér með samþykki viðstaddra. Stjórn Vinnuhundadeildar þakkar Ingibjörgu fyrir aðstoðina. Dómari var Þórhildur Bjartmarz.
F.h Vinnuhundadeildar þakkar dómari þátttakendum fyrir góða samveru og skemmtilegan sporadag.