Mættir á fund eru Dagbjört, Heiðrún, Lovísa og Sara.
Deildarprófin hafa verið mjög títt rætt innan stjórnar Vinnuhundadeildar þar sem oft hefur þátttakan í þau ekki verið að standa undir sér. Sem dæmi var deildarpróf á seinasta ári þar sem ekki einn einasti hundur var úr þeirri deild sem hélt prófið. Alvarleg umræða hefur verið um að gera breytingar á reglum...

þar sem deildarpróf verði að vera lokuð (gildi þar af leiðandi ekki til stigahæsta hundar Vinnuhundadeildar) og setja verði lágmarks reglur varðandi verðlaun í öllum prófum. Dagbjört og Heiðrún munu skoða þessar reglubreytingar.
Vinnuhundadeildin er komin með fyrirmynd að reglum fyrir kennitölu sem þarf að fara yfir áður en lagt er af stað í það verkefni. Sara og Lovísa munu fara yfir þær.
Peysur og logo Vinnuhundadeildar hefur setið inni hjá Merkiverk ansi lengi þar sem þarf að breyta logoinu til að prenta á peysur. Okkur fannst það sem bauðst heldur dýrt eða ekki að ganga enn nú hefur fundist til verksins kona sem tekur um 5000 kr fyrir þessar breytingar og hefur það verið einróma samþykkt á fundinum að láta verða af því.
Dagbjört nefndi að hægt væri að láta útbúa hinar ýmsu vörur til að styrkja deildina eins og taupoka sem geti nýst undir sporahluti, beisli og línu sem séu merkt deildinni. Verður skoðað betur síðar.
Rætt var um það hvenær æfingar Vinnuhundadeildar ættu að byrja aftur en um leið fór umræðan að snúast um veðrið. Hversu gott sé að vera með æfingar í bílastæðahúsi í þessu veðri. Sara athugaði með bílastæðahús Hjartaverndar (meira skjól og meiri nánd) en það var alveg þvertekið fyrir það þrátt fyrir að þetta væri utan opnunartíma og bara í bílastæðahúsinu sjálfu. Því var borið við að húsið stæði fyrir heilbrigði, hvernig sem þau rök standast að fólk að æfa sig með hunda stuðli ekki að heilbrigði. Það var aðeins farið í umræðuna um reiðhallir en því fylgir tilheyrandi kostnaður og skuldbinding af þeirra hálfu sem ætla að mæta á æfingar. Það var ákveðið að skoða málin betur, bæði með veður og reiðhallir áður en lokaákvörðun verður tekin í þessu máli.
Það þarf að efla nefndir og koma þeim betur af stað. Það væri æskilegt að finna einhvern sem hefur gaman af skrifum til að aðstoða með greinar í Sám auk þess að finna einhverja sem hefðu áhuga á að skipuleggja básakynningar og skemmtiatriði á vegum Vinnuhundadeildar. Fljótlega verður farið betur yfir innri gerð nefndanna og þær kynntar betur.
Hlýðnireglur eru komnar í hús frá Silju og verður það með efstu hlutum á forgangslista að fara yfir hlýðni II hlutann. En við fengum allt frá bronsi og upp úr sent þannig að hægt sé að fara yfir aðra hluta hlýðninnar seinna.
Athuga hvort seinni hluti sporareglanna sé tilbúinn hjá Ylfu.
Það þarf að senda prófadagskrá ársins á dómarana og sjá hvort dómarar geti fest sig niður á einhver prófin.
Vinnuhundadeildin ætlar að prófa að senda þeim fyrirtækjum sem hafa verið dugleg að styrkja Vinnuhundadeildina prófa dagskrá og sjá hvort einhverjir hafi áhuga á að festa sér próf.
Athuga hjá Nínó með vesti fyrir Lovísu.
Það var mikið rætt um próf PMF deildar. Það eru 11 dagar í dagsetninguna sem PMF deildin bað um að prófinu yrði frestað á en það nær ekki lágmarks 2 vikna skráningarfresti. Lagt var til að PMF deild gæti skoðað einhverja dagsetningu í febrúar sem mætti leggja inn á skrifstofu HRFÍ til samþykktar. Það er möguleiki að það próf myndi þá fylgja væntanlegum breytingum á reglum deildarprófa sem er fyrirhugað að leggja inn til HRFÍ.
Í framhaldi af prófi PMF deilar kom fyrirspurn hvort það ætti að vera í reglum að dómari sé alltaf kominn 2 vikum fyrir próf (seinasta dag skráningar) á hreint. Þegar um er að ræða beinlínis próf PMF deildar þá var búið að gefa út það loforð að athugað yrði með dómara sem sé öruggt að hafi ekki fordóma gagnvart þeim tegundum sem ættu að þreyja prófið og var því álitið að þeir einstaklingar sem voru áhugasamir um prófin ættu ekki að hafa miklar áhyggjur af því. Þegar hugsað er um þessa beiðni almennt þá sér stjórnin enga ástæðu fyrir því að þetta ætti að stoppa fólk frá því að fara í brons próf þar sem brons próf eru bara tekin einu sinni ef viðkomandi nær bronsmerki í fyrstu atrennu. Brons prófin tengjast ekki titlum. Þegar kemur að hlýðni I og prófunum ofar en það er mjög eðlilegt að dómari sé staðfestur 2 vikum fyrir próf þar sem vonandi verði einhverjir að keppa um nýtilkomna titla. Stjórnin sér ekki fram á að nauðsyn verði að setja þetta í skrifaðar reglur, en að sjálfsögðu sé stefnan með hlýðni I og efri flokka að það verði vonandi einhver dómari búinn að samþykkja prófið 2 vikum fyrir próf.
Það þarf að semja bréf fyrir fólkið sem langar að vera hluti af sporahópnum sem lærir sporadómarann. Það lítur út fyrir að góður hópur sé saman kominn og fljótlega verði hægt að taka næsta skref í þeim málum.
Dagbjört og Sara telja æskilegt að viðhalda básunum á Stórhundadögum í Garðheimum og mögulega reyna að vera með bás á einhverri sýningu/m. Það getur skipt sköpum hversu duglegt fólkið á básunum er að koma sér á framfæri og fanga áhuga vegfarenda.
Stjórnin var mjög spennt fyrir því að reyna að halda helgar sporanámskeið í einhvers konar samstarfi við Drífu rétt fyrir mestu ,,sporatíðina”.
Stjórnin var mjög spennt fyrir því að halda ritara og prófstjóranámskeið fyrir áhugasama einstaklinga um hlýðni. Það væri hægt að setja upp námskeiðið í tengslum við æfingaprófin (svipuð þeim sem voru í fyrra sumar) og þá geti aðilar á námskeiðinu lært af eigin raun.
Rætt var um hinu árlegu hlýðnikeppni Vinnuhundadeildar og hvort hægt sé að breyta henni eitthvað til batnaðar. Það kom upp mikill áhugi á að athuga hvort hægt sé að halda hana í Guðmundarlundi því þar sé auk þess hægt að grilla og skapa mjög skemmtilega úti stemningu í framhaldinu. Áætlað er að hún verði í maí.
Heiðrún nefndi að það mætti skoða að gefa út nokkurs konar yfirlýsingar bæði á heimasíður Vinnuhundadeildar og facebook. Það megi gjarnan minna fólk á að eins og flestir innan HRFÍ sé Vinnuhundadeildin að vinna í sjálfboðastarfi og meðlimir stjórnarinnar gera iðulega sitt besta í fenginni stöðu. Það þarf að minna fólk á að senda fyrirspurnir til deildarinnar í gegnum tölvupóstinn en facebook síður deildarinnar séu ekki ætlaðar til þess að svara fyrirspurnum. Þær eru fyrst og fremst ætlaðar til að koma upplýsingaflæði til skila til meðlima deildarinnar. Að lokum nefndi Heiðrún að það væri sniðugt að búa til yfirlit yfir það sem þyrfti að gera, en það er hægt að framkvæma í gegnum tölvusamskipti.
Fundi slitið.