Vinnuhundadeild HRFÍ
  • Fréttir
  • Hvað er vinnuhundur ?
    • Hvað er Hlýðni?
    • Hvað er Spor?
  • Vinnupróf
    • Dagskrá 2023
    • Reglur
    • Dómarar
  • Vinnuhundadeildin
  • Stigakeppni 2023
    • Reglur Hlýðnihundur ársinns
    • Stigakeppni 2022
    • Stigakeppni 2021
    • Stigakeppni 2020
    • Stigakeppni 2019

Hlýðnipróf 19.11

19/11/2023

 
Síðasta hlýðnipróf ársins var haldið í reiðhöll Sprettara Hattarvöllum 19.11. Prófað var í 3 flokkum, hlýðni Brons, Hlýðni I og Hlýðni II. 
Alls voru 13 hundar skráðir í prófið en 10 hundar luku prófi. 

Dómari: Þórhildur Bjartmarz
Prófstjóri: Silja Unnarsdóttir
Ritari: Gunnar Örn Arnarson 

Einkunnir
Brons
Í fyrsta sæti með 166,5 stig og bronsmerki ISJCh Norðanheiða Vök og Albert Steingrímsson
Í öðru sæti með 129 stig Ice Tindra Team Fura og Þorbjörg Fjóla Sigurðardóttir
Í þriðja sæti með 127,5 stig Kolholts Kolbrá Kvika og Þórhildur Edda Sigurðardóttir

Hlýðni I 
Í fyrsta sæti með 187,5 stig og fyrstu einkunn OB-I Forynju Einstök 
Jafnar í öðru sæti - þriðja sæti með 176 stig og 1 einkunn voru ISJCh ISJW-22 Forynju Gló og Hildur Kristín Þorvarðardóttir
og Víkur Black Pearl og Andrea Björg Hannesdóttir 
Jafnar í fjórða - fimmta sæti með 160 stig og 1 einkunn voru Nætur Keilir og Björg Theodórsdóttir 
og Forynju Gleym Mér Ei og Anna Lilja Dögg Guðmundsdóttir 

Hlýðni II 
Í fyrsta sæti með 184,5 stig og fyrstu einkunn OB-I Undralands Sancerre og Berglind Gísladóttir 
Í öðru sæti með 133 stig og þriðju einkunn OB-I Ryegate's Calleth You Cometh I og Fanney Harðardóttir

Við þökkum starfsfólki og aðstoðarmönnum fyrir aðstoðina í prófinu í dag sem og á árinu. Jafnframt óskum við þátttakendum til hamingju með árangurinn og þökkum EUKANUBA styrktaraðila deildarinnar fyrir vinninga til efstu sæta í flokkum.

Við viljum þakka fyrir frábært hlýðni og sporaár og hlökkum til prófaársins 2024




Picture
Picture
Picture
Powered by Create your own unique website with customizable templates.